Skylmingafólk gerði það gott í Örebro

Skylmingarfólk grátt fyrir járnum. stækka

Skylmingarfólk grátt fyrir járnum. Morgunblaðið/Eggert

Íslenskir skylmingamenn unnu tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun á heimsbikarmóti í skylmingum með höggsverði sem haldið var í Örebro í Svíþjóð um helgina. Ragnheiður Guðjónsdóttir vann silfurverðlaun í flokki fullorðinna og gull í flokki 21 árs og yngri. Gunnar Egill lék vann einnig gullið í flokki 21 árs og yngri.

Gunnar Egill hafnaði í 17. sæti í flokki fullorðinna og Ingimar Bjarni Sverrisson varð í 22. sæti. Bestum árangri náði Haraldur Hugosson þegar hann komst í átta manna úrslit en varð að sætta sig við tap þar fyrir írskum skylmingamanni. Fyrir árangurinn fékk Haraldur eitt stig á heimslista Alþjóða skylmingasambandsins. 

Haraldur tók einnig þátt í liðakeppni með tveimur breskum strákum. Þeir komust í átta liða úrslit þar sem þeir töpuðu fyrir danskri sveit með eins stigs mun.

Um helgina fór einnig fram   A-heimsbikarmót fyrir skylmingamenn 21 árs og yngri í Dourdan í Frakklandi. Íslendingar áttu tvo keppendur í kvennaflokki, Gunnhildi Garðarsdóttir og Ingibjörgu Laufey Guðlaugsdóttir. Keppendur voru 97 frá 16 þjóðum. Gunnhildur náði þremur sigrum í riðlakeppninni og Ingibjörg tveimur. Þær komust báðar upp úr riðlum og áttu bardaga í 128 mannaúrslitum sem þær unnu. Í 64 mannaúrslitum lutu þær báðar í lægra haldi fyrir keppinautum sínum. Gunnhildur endaði því í 58. sæti og Ingibjörg í því 63. sæti. Þetta gefur þeim stig á heimslistann en það eru 64 efstu sem fá stig á svona móti.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is