Rússagull í 15 km skíðaskotfimi

Ustyugov fagnar sigri í kvöld. stækka

Ustyugov fagnar sigri í kvöld. Reuters

Engin norðurlandabúi komst á verðlaunapall í 15 km skíðaskotfimi karla sem lauk
á Vetrarólympíuleikunum í Vancouver í kvöld. Rússinn Evgeny Ustyugov sigraði á 35.35,7 mínútum.

Næstur kom Frakkinn Martin Fourcade en hann var tíu sekúndum á eftir. Pavol Hurajt frá Slóvakíu varð þriðji, sextán sekúndum á eftir sigurvegaranum. Keppnin fór fram með svokölluðu hópstarti þar sem allir keppendur eru ræstir á sama tíma en þeir geta raðað sér við upphafslínuna eftir stöðu á heimslistanum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is