Mistök kostuðu Kramer önnur gullverðlaun

Kramer gat ekki leynt vonbrigðum sínum. stækka

Kramer gat ekki leynt vonbrigðum sínum. Reuters

Hollendingurinn Sven Kramer taldi siga hafa unnið sín önnur gullverðlaun í skautahlaupi á vetrarólympíuleikunum í Vancouver þegar hann kom fyrstur í mark í 10 þúsund metra skautahlaupi. Kramer var hins vegar dæmdur úr leik fyrir að fara út fyrir brautina þegar átta hringir voru eftir af hlaupinu.

Kramer sagðist vanalega ekki kenna öðrum en sjálfum sér um ósigur en í þessu tilfelli væri við þjálfara hans að sakast sem hefði gefið honum rangar upplýsingar.

Kóreumaðurinn Lee Seung-Hoon sigraði þar af leiðandi í hlaupinu og er fyrsti Asíubúinn til þess að sigra í skautahlaupi í þessari vegalengd.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is