Verða engir NHL leikmenn í Sochi?
Úrslitaleikurinn í íshokkí karla á vetrarólympíuleikunum á sunnudag í Vancouver var mjög góð auglýsing fyrir íþróttina að mati flestra. Þar hafði Kanada betur gegn Bandaríkjunum í framlengdum leik, 3:2. Gary Bettman framkvæmdastjóri NHL atvinnumannadeildarinnar í íshokkí Norður-Ameríku er ekki bjartsýnn á að leikmenn úr stærstu atvinnumannadeild heims verði á meðal keppenda á leikunum í Sochi eftir fjögur ár.
„Ólympíuleikarnir kosta okkur peninga. Við gerum langt hlé á keppnistímabilinu okkar til þess að leikmenn geti leikið með landsliðinu á Ólympíuleikum. Það voru fjölmargir NHl-leikmenn í þessari keppni og samanlagður launakostnaður þeirra á ári nemur rúmlega 150 milljörðum kr. Við gætum þurft að endurskoða okkar aðkomu að vetrarleikunum,“ sagði Bettman við fjölmiðla í gær en sérfræðingar um íshokkí vestanhafs telja að Bettman vilji að NHL liðin fái hluta af sjónvarpstekjum IOC.
Gríðarlegt áhorf var á úrslitaleik karla í Kanada og Bandaríkjunum.
Nokkrir vel þekktir rússneskir landsliðsmenn sem eru samningsbundnir NHL liðum hafa sagt að þeir muni einfaldlega hætta að leika í Bandaríkjunum ef NHL mun setja þeim stólinn fyrir dyrnar í febrúar eftir fjögur ár.






