Björninn Íslandsmeistari í kvöld?

Frá hinum æsispennandi leik liðanna í gær. stækka

Frá hinum æsispennandi leik liðanna í gær. mbl.is/Eggert

Björninn úr Reykjavík getur í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí í fyrsta skipti en fjórði úrslitaleikur liðsins gegn Skautafélagi Akureyrar hefst í Egilshöllinni klukkan 19.15.

Tveir fyrstu leikir liðanna fóru fram á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Björninn vann fyrri leikinn en SA þann seinni. Björninn hafði síðan betur eftir framlengingu og vítakeppni í þriðja leiknum í Egilshöllinni í gær og staðan er því 2:1 fyrir Reykjavíkurliðið.

Takist hinsvegar SA að sigra í kvöld fer fimmti og síðasti úrslitaleikur liðanna fram í Skautahöllinni á Akureyri á miðvikudagskvöldið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is