Óðinn bætti sig vel
Óðinn Björn gekkst undir aðgerð á fingri í fyrra, en segist vera búinn að ná sér góðum af þeim meiðslum. „Þetta er allt að koma til og á réttri leið finnst mér,“ sagði Óðinn sem átti sérlega glæsilega kastseríu á mótinu á laugardaginn. Fyrsta kastið hjá honum var 19,14 metrar, síðan kom 19,22 og í lokakastinu fór kúlan 19,50 metra.
Þess má til fróðleiks geta að Óðinn er aðeins 37 sentímetrum frá að jafna árangur föðurbróður síns, Óskars Jakobssonar úr ÍR. Hann varpaði kúlunni lengst 19,87 metra fyrir 28 árum sem er þriðji besti árangur Íslendings í kúluvarpi innanhúss. Óðinn er nú í fjórða sæti á þeim lista.
Íslandsmetið í kúluvarpi innanhúss á Pétur Guðmundsson, HSK, 20,66 metra frá árinu 1990. Annar á listanum er Hreinn Halldórsson, KR, 20,59. Þeim árangri náði Hreinn þegar hann varð Evrópumeistari í kúluvarpi innanhúss í San Sebastian á Spáni árið 1977 . Á næsta föstudag, 12. mars, verða rétt 33 ár liðin frá því afreki Hreins.
Nánar er rætt við Óðin Björn í Morgunblaðinu í dag en mikið er framundan hjá honum á næstu vikum.






