Íþróttir
| mbl
| 9.3.2010
| 16:17
Átta á unglingamót í badminton í Berlín
Unglingalandslið Íslands í badminton, skipað leikmönnum undir 19 ára aldri, er komið til Berlínar í Þýskalandi og tekur þar þátt í alþjóðlegu móti sem hefst á fimmtudaginn.
Átján þjóðir eiga fulltrúa á mótinu og keppendur eru 150 talsins en mót þetta var haldið í fyrsta skipti á síðasta ári. Þar af taka 72 þátt í einliðaleik karla.
Íslensku keppendurnir eru Egill G. Guðlaugsson, Haukur Stefánsson, Jónas Baldursson, Kári Gunnarsson, Elín Þóra Elíasdóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir, Sunna Ösp Runólfsdóttir og Berta Sandholt.
Berta kemur í staðinn fyrir Rakel Jóhannesdóttur sem varð fyrir meiðslum á Íslandsmóti unglinga um síðustu helgi.
Íslensku keppendurnir taka allir þátt í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






