Íþróttir
| mbl
| 10.3.2010
| 19:33
Usain Bolt og Serena Williams heiðruð
Usain Bolt spretthlaupari frá Jamaíka og Serena Williams tenniskona frá Bandaríkjunum voru útnefnd Laureus íþróttafólk ársins 2009 en valið var kunngjört í dag.
Bolt setti ótrúlegt heimsmet í 100 metra hlaupi á HM í Berlín í fyrra og setti annað í 200 metra hlaupi á HM.
Serena Williams sigraði á tveimur risamótum í fyrra, opna ástralska mótinu og Wimbledon mótinu.
Verðlaunin hafa verið afhent síðan 1999 og koma 80 íþróttafréttamenn víðs vegar úr heiminum að því að tilnefna sex íþróttamenn af hvoru kyni sem valið er á milli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







