Jakob Helgi í fremstu röð á Topolinoleikunum
Jakob Helgi Bjarnason, Skíðafélagi Dalvíkur, stóð sig vel á Topolinoleikunum á Ítalíu um síðustu helgi en það mót er talið eitt sterkasta mót í heiminum fyrir krakka í 13-14 ára flokki. Keppendur í flokki drengja 13-14 ára voru samtals 115 frá 44 þjóðlöndum.
Í svigi hafnaði Jakob í 7.sæti og var 43/100 úr sekúndu frá því að komast í verðlaunasæti en aðeins eru gefin verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Í stórsviginu hafnaði Jakob í 5. sæti og var þar líka stutt frá verðlaunasæti eða 56/100 úr sekúndu.
Í svigkeppninni hlekktist Jakobi á í fyrri ferð en náði að komast í mark og var í 11. sæti eftir fyrri en fékk þriðja besta tímann í seinni ferð. Í stórsviginu var hann fjórði eftir fyrri ferð en ítalskur strákur skaust upp fyrir hann í seinni ferð. Í stórsviginu stóð Jakob sig best af öllum Norðurlandabúum en þarna voru þrír bestu strákarnir frá hverju af hinum Norðurlöndunum. Í sviginu var aðeins Norðmaðurinn Martin Fjellberg á undan honum.






