Hulda náði lágmarki fyrir HM unglinga

Hulda Þorsteinsdóttir er efnilegur stangarstökkvari. stækka

Hulda Þorsteinsdóttir er efnilegur stangarstökkvari. www.irsida.is

Hulda Þorsteinsdóttir úr ÍR náði í gærkvöld lágmarki fyrir heimsmeistaramót unglinga þegar hún stökk 3,95 metra í stangarstökki á innanfélagsmóti ÍR í Laugardalshöll.

Hulda, sem er 18 ára gömul, átti góðar tilraunir við 4,05 metra á mótinu en hún hefur æft undir leiðsögn methafans Þóreyjar Eddu Elísdóttur í vetur og tekið stöðugum framförum.

HM unglinga fer fram í Kanada í júlí.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is