Íþróttir
| mbl
| 12.3.2010
| 7:31
Kári lagði Þjóðverja í Berlín
Kári Gunnarsson lagði Þjóðverjann Peter Lang að velli, 21:19 og 21;15, á alþjóðlega unglingamótinu í badminton í Berlín í gærkvöld.
Aðrir leikir íslenska unglingalandsliðsfólksins síðdegis og í gærkvöld töpuðust.
Jónas Baldursson tapaði fyrir Jamie Van Hooijdonk frá Wales, 10:21 og 11:21.
Egill G. Guðlaugsson tapaði fyrir Morten Brödbæk frá Danmörku, 16:21 og 17:21.
Berta Sandholt og Elín Þóra Elíasdóttir töpuðu fyrir Lucie Havlova og Zuzana Pavelková frá Tékklandi, 12:21 og 13:21, í tvíliðaleik.
Jóhanna Jóhannsdóttir og Sunna Ösp Runólfsdóttir töpuðu naumlega fyrir Meike Behrens og Tabea Sänger frá Þýskalandi.
Íslensku keppendurnir halda áfram af fullum krafti í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






