Íþróttir
| Morgunblaðið
| 12.3.2010
| 11:28
| Uppfært
11:49
Þrjú á leið á kastmót í Arles
Ásdís Hjálmsdóttir og Helga Margrét Þorsteinsdóttir fara ásamt þjálfara sínum Stefáni Jóhannssyni til Arles í Frakklandi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Óðinn Björn fer utan ásamt þjálfara sínum, Eggerti Bogasyni, á mánudag en þeir ætla að nýta næstu viku fyrir æfingabúðir ytra. Óðni hefur síðan verið boðið að taka þátt í kúluvarpskeppni Växjö laugardaginn 27. mars og segir Eggert að stefnan sé sett á þátttöku þar.
Ásdís og Helga Margrét fara til Frakklands eftir viku en með þeim í för verður Stefán Jóhannsson, þjálfari þeirra. Eftir mótið í Frakklandi fara þau þrjú til Tenerife þar sem þau verða við æfingar um nokkurra daga skeið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







