Íþróttir
| mbl
| 12.3.2010
| 11:13
Vonn vann heimsbikarinn þriðja árið í röð
Bandaríska skíðakonan Lindsy Vonn varð hlutskörpust í risasvigi á heimsbikarmóti á Garmisch Partenkirchen í morgun og með sigrinum tryggði hún sér heimsbikarinn í samanlögðum greinum þriðja árið í röð.
Vonn, sem er ólympíumeistari og heimsmeistari í bruni, vann einnig heimsbikarinn í risasvigi. Hún varð 0,16 sekúndum á undan Elisabeth Goergl frá Austurríki og í þriðja sæti hafnaði Nadia Styger frá Sviss.
Vonn hefur 1.671 stig í heildarstigakeppninni en aðeins á eftir að keppa í einu móti í heimsbikarnum, í svigi á morgun. Maria Reisch frá Þýskalandi er önnur í stigakeppninni með 1.456 stig og Anja Paerson frá Svíþjóð er þriðja með 1.047.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






