Elías meistari í fyrsta sinn en Hekla vann í þriðja skipti

Hekla Helgadóttir og Elías Snorrason Íslandsmeistarar einstaklinga í kata. stækka

Hekla Helgadóttir og Elías Snorrason Íslandsmeistarar einstaklinga í kata.

Í dag laugardaginn fór fram Íslandsmeistaramót í kata fullorðna.  Nýr Íslandsmeistari var krýndur í kata karla, Elías Snorrason úr KFR, en hann vann Magnús Kr. Eyjólfsson, Breiðabliki, í úrslitum. 

Elías er ekki nema 16 ára gamall og því má segja að þarna sé mjög efnilegur og ungur karatemaður á ferðinni.  Í kvennaflokki áttust við sömu keppendur í úrslitum og í fyrra, en Hekla Helgadóttir varði titil sinn og varð Íslandsmeistari kvenna í kata er hún vann Aðalheiði Rósu Harðadóttiru frá Akranesi.  Þetta er þriðja árið í röð sem Hekla verður Íslandsmeistari í kata kvenna. 

Í sveitakeppni kvenna varð Hekla einnig sigurvegari með sveit Þórshamars ásamt Eddu L. Blöndal og Diljá Guðmundsdóttur.  Edda hefur ekki keppt í kata síðan 2003 en dró aftur fram keppnisgallan sinn í ár.  Í sveitakeppni karla vann lið Þórshamars. Í liðinu voru Tómas Lee Róbertsson, Bjarki Mohrmann og Davíð Örn Halldórsson.  Að lokum varð Þórshamar Íslandsmeistari félaga þegar heildarstig úr keppninni voru talin saman. 
 
Helstu úrslit voru;
Kata karla:
1. Elías Snorrason, KFR
2. Magnús Kr. Eyjólfsson, Breiðablik
3. Tómas Lee Róbertsson, Þórshamar
3. Kristján Helgi Carrasco, Afturelding
 
Kata kvenna:
1. Hekla Helgadóttir, Þórshamar
2. Aðalheiður Rósa Harðardóttir, KAK
3. Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik
3. Diljá Guðmundsdóttir, Þórshamar
 
Hópkata karla:
1. Bjarki, Tómas, Davíð, Þórshamar
2. Goði, sigurður, Sindri, KFR
3. Magnús, Vilhjálmur, Birkir, Breiðablik
 
Hópkata kvenna:
1. Edda, Hekla, Diljá, Þórshamar
2. Aðalheiður, Bergþóra, Eydís, KAK
3. Hafdís, Valgerður, Sólrún, KAK

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is