Erfið byrjun í Eistlandi
Íslenska landsliðið í íshokkí, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, tapaði með sjö marka mun, 9:2, fyrir Króötum í fyrstu umferð A-riðils 2. deildar heimsmeistaramótsins sem hófst í Tallin í Eistlandi í morgun. Annar leikhluti viðureignarinnar reyndist íslenska liðinu erfiður en honum tapaði það, 6:0
Ólafur Björnsson skoraði fyrra mark Íslands á 12. mínútu er hann jafnaði leikinn, 1:1. Tómas Ómarsson gerði síðara markið og minnkaði þá muninn í sjö mörk undir lokin, 9:2, eftir stoðsendingu frá Ingólfi Elíassyni.
Næsti leikur Íslands verður við Serbíu á morgun en einnig mætir íslenska liðið Eistlandi, Ítalíu og Rúmeníu í mótinu.
Íslenska landsliðið vann sig upp úr 3. deild á síðasta ári. Talsverð breyting hefur orðið á landsliðshópnum frá þeim tíma og m.a. eru átta fastamenn sem voru í liðinu á síðasta ári gengnir upp úr liðinu vegna aldurs. Allar andstæðingar Íslands í mótinu eru ofar á styrkleikalista Alþjóða íshokkísambandsins og ljóst að við ramman reip verður að draga í keppninni.






