Gerpla bikarmeistari í hópfimleikum

Sveitir Gerplu hafa lengi verið þær bestu í hópfimleikum hér á landi. stækka

Sveitir Gerplu hafa lengi verið þær bestu í hópfimleikum hér á landi. Ómar Óskarsson

Bikarmótið í hópfimleikum fór nú fram íþróttahúsi Stjörnunnar við Ásgarð. Á mótinu  kepptu allir okkar bestu hópfimleikamenn. Keppt var í þremur flokkum hjá konunum  meistaraflokki, fyrsta flokki og öðrum flokki en hjá körlunum var aðeins eitt lið og kepptu það í meistaraflokki.


Keppnin var jöfn og spennandi í meistaraflokki kvenna en þar kepptu fjögur lið í heildina. Hið sigursæla lið Gerplu náði að tryggja sér sigurinn með samanlagt 48,533 stig, Stjarnan kom á eftir þeim með 45,900 stig, Selfoss lenti í þriðja sæti með 43,467 stig og Keflavík rak lestina með 39,433 stig.


Keppnin í 1. flokki kvenna var ekki síðri og er greinilegt að mikið af efnilegum stúlkum eru að koma upp. Selfossstúlkur stóðu svo uppi sem sigurvegarar eftir gríðarlega jafna keppni við Gerplustúlkur og unnu með aðeins 0,4 stigum. Selfossstúlkur fengu 41,800 stig samanlagt en Gerplustúlkur 41,433 stig. Stjarnan kom svo ekki langt á eftir með 40,333 stig í heildina. Ármann var í fjórða sæti og Rán í því fimmta.


Í 2. flokki kvenna kepptu 5 lið en sömu þrjú lið háðu keppni um gullið og nú var það Stjarnan sem sigraði með 40,633 stig samanlagt en í örðu sæti var Selfoss HM3 með 38,833 stig og í þriðja var Gerpla með 38,667stig.


Strákarnir fengu því miður litla keppni en kepptu í staðinn þeim mun harðar við sjálfa sig og reyndu við ný og erfið stökk með misjöfnum árangri en gaman verður að fylgjast með strákunum áfram. Þeir enduðu með 48,067 stig og geta því vel við unað.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is