Íslensku ungmennin luku keppni í Berlín

Íslenski hópurinn sem keppti í Berlín. stækka

Íslenski hópurinn sem keppti í Berlín.

Íslenska unglingalandsliðsfólkið í badminton lauk í dag keppni á alþjóðlega mótinu í Berlín, German Junior 2010.

Í tvenndarleik töpuðu Haukur Stefánsson og Sunna Ösp Runólfsdóttir 11-21 og 11-21 fyrir danska parinu Nikolai Overgaard og Mette Poulsen.

Kári Gunnarsson og Berta Sandholt töpuðu fyrir Lucas Corvee og Audrey Fontaine frá Frakklandi 13-21 og 16-21. 

Í einliðaleik tapaði Kári fyrir Joo Young Yoon 18-21 og 15-21.  Sunna beið lægri hlut gegn Fabienne Deprez 9-21 og 9-21.  Berta tapaði fyrir So Young Park 8-21 og  6-21.

Í tvíliðaleik töpuðu Jónas Baldursson og Haukur fyrir Benjamin og Schlemmer frá Austurríki 15-21 og 18-21.  Kári og Egill G. Guðlaugsson töpuðu naumlega fyrir Raphael Beck og Fabian Scherben frá Þýskalandi 15-21 og 21-23.  Þar með eru allir íslensku keppendurnir úr leik á mótinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is