KA og HK líkleg í bikarúrslitum

Þróttarkonur frá Neskaupstað eru í undanúrslitum. stækka

Þróttarkonur frá Neskaupstað eru í undanúrslitum. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is

Blakfólk stendur í ströngu nú um helgina í Laugardalshöllinni en á morgun verða krýndir bikarmeistarar í karla- og kvennaflokki þegar leikið verður til úrslita í bikarkeppninni, Bridgestone-bikarnum.

Í dag verður leikið í undanúrslitum og hefst blakveislan klukkan 12 þegar KA og Fylkir eigast við í kvennaflokki og klukkan 14 munu kvennalið Þróttar frá Neskaupstað og HK hefja leik. HK-ingar eiga titil að verja en Kópavogsliðið hafði betur gegn Þrótti N í úrslitum á síðasta ári. Leikir karlaliðanna eru síðan kl. 16 og 18.

Morgunblaðið fékk Sævar Má Guðmundsson, framkvæmdastjóra Blaksambandsins, til að spá í spilin en Sævar, sem sjálfur leikur með Þrótti Reykjavík, er öllum hnútum kunnugur í blakíþróttinni.

Sjá nánar hverju Sævar spáir í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is