Íþróttir
| Morgunblaðið
| 13.3.2010
| 10:12
„Sé mikið efni í Huldu“
Eftir Ívar Benediktsson, iben@mbl.is
Hulda, sem er 18 ára gömul, tryggði sér þar með farseðilinn á heimsmeistaramót 19 ára og yngri sem fram fer í Kanada í sumar.
Íslandsmetið í flokki 19-20 ára (en Hulda verður 19 ára á þessu ári) er 4,20 metrar, í eigu Völu Flosadóttur frá árinu 1997.
„Hulda byrjaði að æfa hjá mér fyrir 15 mánuðum og hefur síðan bætt sig um 75 sentímetra sem hreint frábært,“ segir Þórey Edda.
„Ég sé mikið efni í Huldu. Hún hefur allt það til að bera sem góður íþróttamaður þarf, jafnt líkamlega sem andlega."
Sjá nánar viðtal við Þóreyju Eddu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






