Erna fær aðra ferð

Frá setningarhátíð vetarólympíuleika fatlaðra í Vancouver. stækka

Frá setningarhátíð vetarólympíuleika fatlaðra í Vancouver. Reuters

Erna Friðriksdóttir skilað sér í mark í fyrri ferð svigkeppni vetrarólympíuleika fatlaðra í Vancouver en fyrri hluta keppninnar í svigi í sitjandi flokki var að ljúka. Sautján keppendur voru skráðir til leiks en þrír heltust í lestinni í fyrri ferð. Erna hafnaði í fjórtánda sæti, tæpum þremur sekúndum á eftir þeim sem bestum tíma náði.

Erna keppir því á nýjan leik í kvöld þegar síðari umferðin fer fram á níunda tímanum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is