KA bikarmeistari í blaki karla

Piotr Slawomir Kempisty var í lykilhlutverki hjá KA í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni. stækka

Piotr Slawomir Kempisty var í lykilhlutverki hjá KA í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni. mbl.is/Golli

KA varð í dag bikarmeistari í blaki karla eftir sigur á Stjörnunni 3:2 í úrslitaleik í Laugardalshöll. KA hefndi þar með ófaranna frá 2008 þegar Stjarnan vann KA í bikarúrslitaleik.

Stjarnan komst í 1:0 og 2:1 en það dugði ekki til og bikarinn fer norður yfir heiðar með Akureyringum.

Leikmenn KA áttu meira eftir á tanknum og unnu síðustu tvær loturnar mjög sannfærandi. Oddalotuna vann KA 15:3. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is