Strákarnir sigruðu Serba á svellinu

Björninn á hálft U18 ára liðið sem er í Eistlandi. stækka

Björninn á hálft U18 ára liðið sem er í Eistlandi. mbl.is/Ómar

Íslenska unglingalandsliðið í íshokkí, 18 ára og yngri, vann í dag góðan sigur, 4:2, á Serbum í 2. deild heimsmeistarakeppninnar í þessum aldursflokki í Eistlandi í dag.

Íslensku strákarnir, sem töpuðu 2:9 fyrir Króötum í fyrsta leiknum í gær, voru 0:1 undir eftir fyrsta leikhluta. Þeir komust í 2:1 í öðrum hluta, Serbar jöfnuðu, en Ísland skoraði aftur áður en honum lauk og innsiglaði sigurinn með marki í þeim fjórða.

Tómas Ómarsson skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu, Arild Sigfússon og Ólafur Björnsson gerðu sitt markið hvor og Björn Róbert Sigurðarson átti eina stoðsendingu.

Ísland er þá komið með 3 stig eftir 2 leiki og mætir næst Eistlandi á þriðjudag. Fyrirfram var Ísland metið með lakasta liðið í riðlinum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is