Íþróttir
| mbl
| 14.3.2010
| 17:26
| Uppfært
17:43
Tamgho með nýtt heimsmet í þrístökki
Hinn 20 ára gamli Teddy Tamgho frá Frakklandi sigraði á nýju heimsmeti í þrístökki á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem haldið er í Doha.
Tamgho stöll 17,90 metra og bætti hann heimsmetið sem þeir áttu í sameiningu Svínn Christian Olsson og Aliecer Urrutia frá Kúbu en það var 17,83 metrar.
Heimsmetið í þrístökki utanhúss er í eigu Bretans Jonathan Edwards, 18,29 metrar sem hann setti á heimsmeistaramótinu í Gautaborg árið 1995.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






