Erna dæmd úr leik í Vancouver
Erna Friðriksdóttir, eini keppandi Íslands á vetrarólympíumóti fatlaðra í Vancouver, var í nótt dæmd úr leik í svigkeppninni sem fram fór í gærkvöld en þar hafði hún endað í 11. sæti.
Erna var annar tveggja keppenda sem dæmdir voru úr leik fyrir að sleppa hliði í seinni ferðinni í keppni í sitjandi flokki.
Að sögn Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur frá Íþróttasambandi fatnaðra sem er með Ernu í Vancouver sýndi Erna mikla þrautseigju í svigkeppninni og vakti mikla athygli áhorfenda fyrir einstakan baráttuvilja.
"Hún ætlaði sér að ljúka keppni og komast í mark þrátt fyrir fall á erfiðum stað í brautinni, og gerði það, en því miður var hún dæmd úr leik," sagði Anna Karólína.
Erna er fyrsti keppandi Íslands í alpagreinum á vetrarólympíumóti fatlaðra. Hún verður aftur á ferðinni annað kvöld og þá í stórsvigi.






