Stórtap gegn Ítalíu í Eistlandi

Það er oftar en ekki hart barist á svellinum í íshokkíleikjum. stækka

Það er oftar en ekki hart barist á svellinum í íshokkíleikjum. mbl.is/Ómar

Íslenska landsliðið í íshokkí, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, tapaði 16:0 gegn Ítalíu í A-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í Eistlandi. Þetta er þriðji tapleikur Íslands á mótinu en íslenska liðið lagði Serba, 4;2, en tapaði gegn Króatíu 9:2 og Eistlandi 10:3. 

Yfirburðir Ítala voru miklir í Narva í dag en staðan var 4:0 eftir fyrsta leikhluta, 11:0 eftir tvo leikhluta og 16:0 í leikslok. Íslenska liðið náði aðeins fjórum skotum að marki en Ítalía náði 99 skotum að marki Íslands. Markverðir Íslands höfðu í nógu að snúast og vörðu þeir 83 skot samtals.  

Næsti leikur Íslands er gegn Rúmeníu á föstudag. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is