Jóhann Rúnar fer á HM í borðtennis

Jóhann Rúnar Kristjánsson. stækka

Jóhann Rúnar Kristjánsson. mbl.is/Golli

„Ég var gríðarlega ánægður með að fá þessar fréttir og þetta verður spennandi ár fyrir mig,“ sagði borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar Kristjánsson við Morgunblaðið í gær, en Suðurnesjamaðurinn verður á meðal keppenda á heimsmeistaramóti fatlaðra í borðtennis sem fram fer í Suður-Kóreu í október á þessu ári.

„Ég hafði áhyggjur af því að vera ekki í hópi þeirra 18 sem komast á mótið og þetta voru því gleðifréttir fyrir mig og þjálfarana mína, Helga Þór Gunnarsson og Kristján Jónasson.“ Jóhann Rúnar sigraði í keppni við ófatlaða í 1. flokki á Íslandsmótinu sem fram fór á dögunum en þar varði hann titil sinn.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is