Íþróttir
| mbl
| 18.3.2010
| 16:21
Þrír þjálfarar skipa þjálfararáð SSÍ
Stjórn Sundsambands Íslands hefur skipað þjálfararáð sem mun vinna saman sem landsliðsþjálfari eða einvaldur fyrir SSÍ. Þrír þjálfarar skipa ráðið ásamt framkvæmdastjóra Sundsambandsins.
Steindór Gunnarsson þjálfari Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Jacky Pellerin þjálfari Sundfélagsins Ægis og Klaus Jürgen-Ohk þjálfari Sundfélags Hafnarfjarðar skipa þjálfararáðið ásamt Ingigerði Einarsdóttur framkvæmdastjóra SSÍ.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






