Fjölmenni á Íslandsmóti fatlaðra
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fer fram um helgina. Alls eru 392 keppendur skráðir til leiks frá 23 félögum. Af þessum 23
félögum eru 18 aðildarfélög Íþróttasambands fatlaðra en frá öðrum
félögum hafa
Ungmennafélag Njarðvíkur, Ármann, Rimmugýgur, Hringhorni og FH sent
keppendur
til leiks.
Keppt verður í sex greinum, sundi, boccia, bogfimi, frjálsum íþróttum, lyftingum og borðtennis. Keppni í sundi fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði, keppni í borðtennis fer fram í TBR húsinu en hinar fjórar greinarnar fara fram í Laugardalshöll. Frjálsar og bogfimi í frjálsíþróttahöllinni, lyftingar í bíósal frjálsíþróttahallar og boccia í aðalsal Laugardalshallar.
Sýnt verður beint frá boccia, lyftingum og frjálsum íþróttum á netútsendingastöðinni www.sporttv.is á sunnudeginum.
Morgunblaðið mun fjalla um mótið á íþróttasíðum mánudagsblaðsins.






