Íþróttir
| mbl
| 19.3.2010
| 8:13
Formaður WADA vill hert eftirlit í MLB-deildinni
John Fahey formaður Alþjóða lyfjaeftirlitsins, WADA, hefur krafist þess að eigendur liða og leikmannasamtök bandarísku hafnaboltadeildarinnar MLB komist að samkomulagi um hertar aðgerðir vegna lyfjaprófa. Fahey telur að lyfjaeftirliti sér ábótavant í íþróttinni og þar hefur hann sérstakar áhyggjur af notkun vaxtarhormónsins HGH.
Fahey telur að forsvarsmenn MLB verði að taka upp þær reglur sem notaðar eru í öðrum íþróttagreinum þar sem að hægt verði að kalla leikmenn í lyfjapróf utan keppnistímabilsins.
Leikmannasamtök MLB hafa enn ekki samþykkt að tekin séu blóðsýni af þeim í lyfjaeftirliti en ekki er leyfilegt að taka blóðsýni. Þessu vill Fahey breyta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






