Íslandsmet hjá Bryndísi í flugsundi

Bryndís Rún Hansen úr Óðni. stækka

Bryndís Rún Hansen úr Óðni. mbl.is/Skapti

Bryndís Rún Hansen úr Sundfélaginu Óðni á Akureyri setti eina Íslandsmet dagsins á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem fram fer í Laugardalnum.

Bryndís synti 50 metra flugsund á 27,85 sekúndum og bætti eigið Íslandsmet um fjórðung úr sekúndu. 

Keppt var í nokkrum greinum í dag og mótinu verður framhaldið um helgina. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is