Íþróttir
| mbl
| 19.3.2010
| 11:01
KA einu skrefi frá úrslitum í blaki karla
Úrslitakeppnin í Mikasadeild karla í blaki stendur nú yfir. HK lagði Stjörnuna 3:2 í karlaflokki í fyrrakvöld en allir leikir þessara liða í vetur hafa endað í oddahrinu. KA lagði Þrótt úr Reykjavík 3:0 í leik sem fram fór á miðvikudag.
Stjarnan tekur á móti HK á morgun, laugardag kl. 14.30 í Ásgarði í öðrum leik liðanna. Í kvöld eigast við Þróttur og KA í Kennaraháskólannum og hefst leikurinn kl. 19. KA getur með sigri tryggt sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






