KA í úrslit Íslandsmótsins í blaki

Leikmenn KA fagna hér bikarmeistaratitlinum. stækka

Leikmenn KA fagna hér bikarmeistaratitlinum. mbl.is/Eggert

Bikarmeistaralið KA frá Akureyri tryggði sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins í blaki karla, Mikasadeildinni, í kvöld með 3:1 sigri gegn Þrótti úr Reykjavík. KA mætir Stjörnunni eða HK í úrslitum.

Þróttur vann fyrstu hrinuna í kvöld 25:21. Önnur hrinan var jöfn og spennandi en KA hafði betur 25:22. Þriðja hrinan var einnig í járnum en KA landaði sigri 25:23 eftir að Þróttur hafði komist yfir 23:22. Fjórða hrinan var eign KA manna sem lönduðu mikilvægum sigri. Stjarna og HK eigast við í Ásgarði á morgun kl. 14.30 og þar HK með yfirhöndina 1:0 og geta með sigri tryggt sér sæti í úrslitum gegn KA.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is