Öruggir sigrar á Íslandsmótinu í 50 metra laug

Ragnheiður Ragnarsdóttir stækka

Ragnheiður Ragnarsdóttir mbl.is/Brynjar Gauti

Ragnheiður Ragnarsdóttir KR, Jakob Jóhann Sveinsson Ægi og Hrafnhildur Lúthersdóttir SH landsliðsfólk í sundi tryggðu sér Íslandsmeistaratitla  á Íslandsmótinu í 50 metra laug í dag.

Öll unnu þau mjög örugga sigra.

Ragnheiður sigraði í 100 metra skriðsundi á 56,28 sekúndum. Hjá körlunum sigraði Orri Freyr Guðmundsson SH á 53,58 sekúndum.

Hrafnhildur sigraði á tímanum 1:10,47 í 100 metra bringusundi. Hjá körlunum sigraði Jakob á 1:01,84 sekúndum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is