Íþróttir
| mbl
| 19.3.2010
| 11:15
Þróttur N. og HK með vænlega stöðu
Úrslitakeppnin í Mikasadeild kvenna í blaki stendur nú yfir en úrslitakeppnin er tvískipt. Þrjú neðstu liðin leika sín á milli og þar hafði Þróttur úr Reykjavík betur gegn Ými, 3:1. Stjarnan úr Garðabæ er þriðja liðið í þeirri keppni.
Fjögur efstu liðin í deildinni keppa í undanúrslitum um hvaða tvö lið leika síðan um Íslandsmeistaratitilinn. Íslandsmeistaralið HK lagði Fylki örugglega 3:0 og þarf því aðeins einn sigur til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitum. Þróttur frá Neskaupstað er 1:0 yfir gegn KA í hinum undanúrslitaleiknum. Þróttur hafði betur 3:0 í gær þegar liðin áttust við í Neskaupstað.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin