Ætlum okkur fyrst og fremst sigur
Eftir Ívar Benediktsson, iben@mbl.is
„Færeyingar mæta með sitt sterkasta lið í leikinn eftir því sem ég veit best. Mér sýnist að það vanti tvo leikmenn sem voru að spila með þeim í undankeppni HM, en ég hef verið að skoða upptökur af leikjum þeirra í keppninni,“ segir Ólafur en Rógvi Jacobsen, fyrrverandi KR-ingur, og Jákup á Borg hafa dregið sig út úr hópnum.
„Færeyingar eru með hörkulið sem við getum alls ekki vanmetið. Á mörgum síðustu árum höfum við verið í basli með þá.
Eins við þekkjum á þeim fjölda færeyskra fótboltamanna sem leikið hafa hér á landi á síðustu árum þá eru þeir duglegir og leggja sig alltaf fullkomlega fram í hverjum leik, reyndar eins og íþróttamenn eiga alltaf að gera,“ segir Ólafur sem getur ekki stillt upp sínu sterkasta liðið þar sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða. Þar af leiðandi er enginn af þekktari og reyndari atvinnumönnum Íslands með að þessu sinni. Jóhann Berg Guðmundsson, Kolbeinn Sigþórsson, sem eru á mála hjá Alkmaar í Hollandi, eru í hópnum að þessu sinni en þeir hafa fá tækifæri fengið með aðalliði Alkmaar.
Vettvangur til að láta ljós sitt skína
„Þessi leikur er kjörinn vettvangur fyrir menn til að láta ljós sitt skína nú þegar reynslumeiri leikmenn okkar eru ekki með. Nú fá strákarnir hér heima tvo leiki, fyrst þennan við Færeyinga og síðan gegn Mexíkó ytra í næstu viku. Þetta er það sem ég vil, það er að leika sem flesta leiki því aðeins þannig getum orðið betri og stækkað þann hóp sem skipar landsliðið hverju sinni,“ segir Ólafur.Spurður hvort hann ætli að skipta leiknum mikið milli leikmanna sagði Ólafur það ekki vera ljóst. „Það er erfitt að segja til um það fyrirfram. Það fer eftir því hvernig leikurinn þróast hvernig ég spila úr hópnum.
En markmiðin okkar eru skýr og þau eru að vinna leikinn,“ segir Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í kanttspyrnu karla.






