Íþróttir
| Morgunblaðið
| 20.3.2010
| 8:19
Helga keppir ekki í París
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is
Helga tognaði á liðbandi við hæl í keppni á sænska meistaramótinu í fjölþraut fyrir tveimur vikum og vildi hún ekki taka neina áhættu með því að keppa í Frakklandi.
Meiðslin eru ekki alvarleg hjá Helgu og á þriðjudag mun hún halda til Tenerife á Kanaríeyjum í æfingabúðir í 10 daga.
Tveir íslenskir keppendur taka þátt í vetrarkastmótinu sem fram fer í París. Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH keppir í kúluvarpi og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni keppir í spjótkasti. Ásdís setti Íslandsmet á vetrarkastmótinu á síðasta ári þegar það var haldið á Kanaríeyjum og rauf 60 metra múrinn í fyrsta skipti í spjótkasti. Þá tók Bergur Ingi Pétursson, Íslandsmethafi í sleggjukasti úr FH, einnig þátt í mótinu. Hann er meiddur í baki núna og er ekki með.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






