Íþróttir
| mbl
| 20.3.2010
| 17:24
| Uppfært
18:03
Kristinn setti drengjamet
Kristinn Þórarinsson úr Fjölni setti í dag drengjamet í 200 metra fjórsundi á Íslandsmeistaramótinu í sundi sem stendur yfir í Laugardalslaug. Kristinn synti á 2.25,09 mínútum. Gamla metið átti Gunnar Örn Arnarson, ÍRB, 2.26,23 mín.
Bryndís Rún Hansen, Óðni, setti nýtt stúlknamet í 200m flugsundi. Bryndís Rún synti á tímanum 1:03.72.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar, setti stúlknamet í 50m skriðsundi á tímanum 26.60.
Þá var Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi, fjóra hundraðshluta frá Íslandsmetinu í 50m baksundi. Eygló Ósk synti á 30.45 en Íslandsmetið er 30.41. Með þessu sundi setti Eygló Ósk stúlknamet.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






