Íþróttir
| Morgunblaðið
| 20.3.2010
| 12:50
Óvænt upprisa ólíkindatóls
Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is
Bandaríski skíðakappinn Bode Miller var óumdeilanlega ein helsta stjarna vetrarólympíuleikanna sem haldnir voru í Vancouver á dögunum. Miller vann til þrefaldra verðlauna á leikunum og fékk alla málmana, gull, silfur og brons.
Var þetta hans fyrsta ólympíugull og fullkomnaði Miller þar með glæsilegt verðlaunasafn sitt. Hann er nú sigursælasti skíðaíþróttamaður Bandaríkjanna frá upphafi en er þó ekki þjóðhetja eins og svo oft er með framúrskarandi íþróttamenn. Miller er nefnilega ekkert sérstaklega vinsæll og hefur verið nokkuð uppátækjasamur í gegnum tíðina enda virðist hann vera fremur sérstakur persónuleiki.
Ítarleg úttekt á ferli Bode Millers er í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






