Íþróttir
| mbl
| 21.3.2010
| 17:22
Ásdís kastaði 59,98 metra í Frakklandi
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari úr Ármanni kastaði 59,98 metra á vetrarkastmóti sem fram fer í Frakklandi. Ásdís gerði fyrstu tvö köstin ógild en hún kastaði 58,88 m., 57,96 m., 59,98 m. og 57,50 m. Martina Ratej frá Slóveníu sigraði með kast upp á 65,96 m.
Ásdís endaði í fjórða sæti í úrslitum en alls tóku 16 keppendur þátt.
Ásdís tvíbætti eigið Íslandsmet á s.l. ári. Fyrst kastaði hún 60,42 metra á
vetrarkastmóti á Kanaríeyjum í mars og síðan 61,37 metra á móti Ármanns
á Laugardalsvellinum
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






