Jakob og Ragnheiður heim með bikara
Jakob Jóhann hlaut Sigurðarbikarinn fyrir 100 m bringusund sem hann synti á 1:01,84 á föstudaginn en það sund gefur honum 850 FINA stig. Sigurðarbikarinn er gefinn í minningu Sigurðar Jónssonar Þingeyings. Hann er veittur fyrir besta bringusundsafrekið á ÍM-50 hvort sem er kvenna eða karla.
Jakob Jóhann hlaut einnig Ásgeirsbikarinn fyrir 100 m bringusund en hann er gefinn í minningu Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrum forseta Íslands, og afhenti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Jakobi bikarinn.
Jakob Jóhann hlaut svo loks Pétursbikarinn fyrir 200 m bringusund sem hann synti á 2:12,39 á HM í Róm en það sund gefur honum 889 FINA stig. Pétursbikarinn, sem er farandbikar, er gefinn í minningu Péturs Kristjánssonar sundkappa úr Sunddeild Ármanns. Hann er veittur árlega í karlaflokki fyrir besta afrek í sundi samkvæmt stigatöflu FINA frá lokum ÍM-50 árið áður og að lokum ÍM-50 viðkomandi ár.
Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR fór einnig heim með bikar en hún hlaut Kolbrúnarbikarinn fyrir 100 m skriðsund sem hún synti á 0:55,66 á bikarmótinu 2009 sem gaf henni 818 FINA stig.
Kolbrúnarbikarinn er gefinn í minningu Kolbrúnar Ólafsdóttur úr Sunddeild Ármanns. Hann er farandgripur sem veittur er árlega í kvennaflokki fyrir besta afrek í sundi samkvæmt stigatöflu FINA frá lokum ÍM-50 árið áður til loka ÍM-50 viðkomandi ár.
Þrír tryggðu sér sæti á ÓL
Kristinn Þórarinsson úr Fjölni átti góðu gengi að fagna á mótinu um helgina og hann setti drengjamet í 100 metra baksundi í gær. Kristinn synti á tímanum 1:05,08 í úrslitasundinu en fyrra metið átti Örn Arnarson og var það frá árinu 1995.Hrafnhildur Lúthersdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar, var svo örstutt frá Íslandsmetinu í 200 m bringusundi þegar hún synti á tímanum 2:32,71 í gær.
Mikil kynslóðaskipti eiga sér nú stað í sundinu, og sést það til að mynda á ungum aldri Íslandsmeistara í mörgum greinum, en fjórir sundmenn hafa nú náð lágmörkum inn á Ólympíuleika ungmenna sem fram fara í Singapúr í ágúst.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, SH, synti undir lágmarki í 200 m skriðsundi þegar hún kom í mark á 2:08,05 en hún hefur einnig náð lágmarkinu í 50m og 100m skriðsundi. Hún synti 50 metrana á 26,60 og 100 metrana á 58,82.
Hrafn Traustason, SH, náði B-lágmarkinu í 200m bringusundi í gærmorgun með tímanum 2:23,66.
Þá hefur Bryndís Rún Hansen, Óðni, náð lágmarkinu í 50 m og 100 m flugsundi. Hún synti 50 m flugsund á tímanum 27,65 og 100 m flugsund á 1:03,72. Áður hafði Inga Elín Cryer náð lágmarkinu í 400 m skriðsundi. sindris@mbl.is







