Contador tók forustuna

Forustuhópurinn í Frakklandshjólreiðunum í dag.
Forustuhópurinn í Frakklandshjólreiðunum í dag. Reuters

Spánverjinn Alberto Contador náði forustunni í Frakklandshjólreiðunum á 15. dagleið keppninnar í dag. Andy Schleck frá Lúxemborg, sem haft hefur forustu í keppninni undanfarna daga, missti gulu treyjuna þegar keðjan á hjóli hans slitnaði á lokasprettinum.

Contador náði 20,5 sekúndna forskoti á Schleck í dag. Frakkinn Thomas Voeckler var fljótastur á dagleiðinni í dag  en hjóluð var 187,5 km vegalengd milli Pamiers til Bagneres-de-Luchon.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert