Íþróttir
| mbl
| 28.7.2010
| 20:14
Lemaitre sigraði í 100 metra hlaupi karla
Christhophe Lemaitre frá Frakklandi kom fyrstur í mark í úrslitum í 100 metra hlaupi karla í kvöld á Evrópumeistaramótinu í Barcelona á Spáni. Lemaitre hljóp á 10,11 sekúndum en fjórir keppendur komu jafnir í mark á 10,18 sekúndum.
Eftir úrskurð dómara endaði Bretinn Mark-Lewis-Francis í öðru sæti, Martial Mbandjock frá Frakklandi varð þriðji, Francis Obikwelu frá Portúgal varð fjórði og í fimmta sæti endaði Bretinn Dwain Chambers.
Lemaitre er eini hvíti spretthlauparinn sem hefur náð að hlaupa undir 10 sekúndum en það gerði hann fyrr á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






