Radevica sigraði í langstökki kvenna á EM

Naide Gomes frá Portúgal í langstökkskeppninni í kvöld. stækka

Naide Gomes frá Portúgal í langstökkskeppninni í kvöld. Reuters

Ineta Radevica frá Lettlandi sigraði í langstökki kvenna á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í kvöld í Barcelona á Spáni. Hún stökk 6,92 metra líkt og Naide Gomes frá Portúgal.

Næst besti árangur Radevica var 6,87 metrar og sá árangur tryggði henni gullið. Bæði Radevica og Gomes stukku 6,92 metra í fjórðu umferð. Olga Kucherenko frá Rússlandi varð þriðja en hún stökk 6,84 metra.

Karolina Klüft frá Svíþjóð tók þátt í langstökkinu og endaði hún í 11. sæti af alls 12 sem komust í úrslit. Klüft hefur einbeitt sér að langstökkinu eftir að hún hætti keppni í sjöþraut.

Heimsmetið í greininni er 22 ára gamalt en það á Galina Chistyakova frá Rússlandi en hún stökk 7,52  metra árið 1988.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is