Íþróttir
| mbl
| 29.7.2010
| 8:12
Abeylegesse sigraði með yfirburðum
Elvan Abeylegesse frá Tyrklandi sigraði með yfirburðum í 10.000 metra hlaupi kvenna á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í gær. Hún var 12 sekúndum á undan Ingu Abitovu frá Rússland.
Abeylegesse er fædd í Eþíópíu en er nú með tyrkneskan ríkisborgararétt. Hún ætlar sér einnig sigur í 5.000 metra hlaupinu. Hún kom í mark á 31.10,23 mínútum. Inga Abitova frá Rússland varð önnur en hún sigraði á Evrópumeistaramótinu árið 2006 í þessari grein. Jessica Augusto frá Portúgal varð þriðja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






