Arnar og Magnús til Árósa

Magnús Gunnarsson. stækka

Magnús Gunnarsson. hag / Haraldur Guðjónsson

Miklar líkur eru á því að bakverðirnir Arnar Freyr Jónsson og Magnús Þór Gunnarsson muni leika í efstu deild í Danmörku á næstu leiktíð. Um er að ræða lið Aabyhøj í Árósum en að sögn Magnúsar hafnaði liðið í 6. sæti á síðustu leiktíð. Allan Foss, fyrrum landsliðsþjálfari Dana, stýrir liðinu. „Eins og staðan er núna þá bendir allt til þess að við séum á leiðinni til Danmerkur. Það kemur þó ekki í ljós fyrr en um miðjan ágúst þegar Danirnir koma úr sumarfríi,“ sagði Magnús þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Magnús sagði málið eingöngu snúast um hvort Danirnir fyndu fyrir þá vinnu. „Arnar Freyr var á leiðinni út og þá spurði ég þá bara hvort þeir vildu ekki fá mig líka. Í kjölfarið fór allt í gang og ég fæ að fljóta með. Eins og staðan er á Íslandi í dag þá er ekkert grín að vera atvinnulaus. Ég missti vinnuna fyrir stuttu,“ útskýrði Magnús og sagði þá félaga hafa skoðað aðstæður hjá félaginu. „Við erum búnir að fara út og skoða þetta. Okkur leist mjög vel á.“ kris@mbl.is
Arnar Freyr Jónsson.

Arnar Freyr Jónsson. mbl.is/Skúli Sigurðsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is