Íþróttir
| mbl
| 29.7.2010
| 20:02
Ásdís endaði í 10. sæti - Stahl Evrópumeistari
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari úr Ármanni endaði í 10. sæti á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona á Spáni. Hún kastaði 54,32 metra en Íslandsmet hennar 61,32 metrar. Alls komust 12 keppendur í úrslit. Linda Stahl frá Þýskalandi varð Evrópumeistari en hún kastaði 66,81 metra og er það besti árangur hennar.
Landa hennar Christina Öbergföll varð önnur með 65,58 metra. Barbora Spotákova frá Tékklandi varð þriðja en hún á heimsmetið í greininni, 72,28 metra sem hún setti fyrir tveimur árum á HM í Stuttgart í Þýskalandi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






