„Blindur“ Íri sló í gegn á EM - myndband

Jason Smyth stækka

Jason Smyth Reuters

Írinn Jason Smyth skráði nafn sitt í sögubækurnar á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í fyrradag þegar hann hóf keppni í undanrásum í 100 metra hlaupi í Barcelona.

Myndband frá sænska ríkissjónvarpinu.

Smyth er aðeins með 10% sjón og hefur hann tekið þátt á ólympíumóti fatlaðra þar sem hann sigraði m.a. í 100 og 200 m hlaupi í sínum fötlunarflokki. Smyth er fyrsti

íþróttamaðurinn sem nær þeim áfanga að taka þátt á stórmóti í frjálsíþróttum í keppni fatlaðra og ófatlaðra. Smyth hljóp á 10,43 sekúndum og varð hann fjórði í sínum riðli og komst hann áfram í undanúrslit þar sem 24 keppendur tóku þátt.

Smyth náði sér vel á strik í undanúrslitahlaupinu þar sem hann kom í mark á 10,46 sekúndum. Hann endaði í 14. sæti. Írinn æfði í Flórída í Bandaríkjunum s.l. vetur þar sem margir af bestu spretthlaupurum heims æfðu með honum. Fjölskylda og vinir Smyths stóðu straum af kostnaðinum sem þessu fylgdi en árangur hans á EM hefur vakið gríðarlega athygli. Smyth er aðeins 23 ára gamall og hann ætlar sér stóra hluti á Ólympíuleikunum í London eftir tvö ár. „Sjálfstraustið var ekki mikið hjá mér fyrir þetta mót en ég veit núna að ég get keppt á meðal þeirra bestu,“ sagði Smyth við breska fjölmiðla í gær.

 seth@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is