Ísland tekur þátt í EM í áströlskum fótbolta

Íslenska landsliðið í áströlskum fótbolta. stækka

Íslenska landsliðið í áströlskum fótbolta. mbl.is

Íslenska landsliðið í áströlskum fótbolta tekur um næstu helgi þátt í sínu fyrsta Evrópumeistaramóti í íþróttinni í Danmörku og Svíþjóð.  Mótið stendur yfir dagana 1.-7. ágúst og mun íslenska liðið leika í riðli með heimamönnum Danmörk, Finnlandi og Englandi eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu sem barst fjölmiðlum í dag.

16 leikmenn eru inná í hvoru liði og leiknar eru 4x15 mínútur.  Þótt íslenska liðið sé ungt og fremur óreynt, eru innan liðsins sterkir leikmenn sem hafa mikla reynslu af íþróttinni erlendis, s.s. í Danmörku og Frakklandi.  

Ástralskur fótbolti, sem hefur fengið nafnið andspyrna, er nýleg íþrótt hér á landi, en í örum vexti.  Þrjú lið eru nú hér á landi, sem keppa í Íslandsmóti í fyrsta skipti nú í sumar.

Hægt er að fylgjast má með framvindu mótsins á síðunni http://www.ec2010.info/

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is