Íþróttir
| mbl
| 31.7.2010
| 11:00
Ennis fyrst í sjöþrautinni
Jessica Ennis frá Bretlandi er með forystu þegar tvær greinar eru eftir í sjöþruat kvenna á EM í Barcelona.
Ennis stökk 6,43 í langstökkinu í morgun og fékk fyrir það 985 stig og helduröruggri forystu með 5.065 stig. Næst er Nataliya Dobrynska frá Úkraínu með 4.997 stig og Jennifer Oester frá Þýskalandi er í þriðja sæti með 4.907.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir er hætt keppni líkt og tvær aðrar stúlkur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






