Íþróttir
| mbl
| 31.7.2010
| 23:05
Saladuha sigraði með ótrúlegum yfirburðum
Olha Saladuha frá Úkraínu stökk lengst allra í þrístökki kvenna á EM í frjálsíþróttum í Barcelona í kvöld. Reuters
Olha Saladuha frá Úkraínu stökk lengst allra í þrístökki kvenna á EM í frjálsíþróttum í Barcelona í kvöld. Hún stökk 14,81 metra en Simona La Mantia frá Ítalíu varð önnur en hún stökk 14,56 metra.
Saladuha stökk því 25 sentimetrum lengra en Mantina og eru þetta mestu yfirburðir í sögu þrístökksins á EM í kvennaflokki. Svetlana Bolshakova frá Belgíu varð þriðja en hún stökk 14,55 metra. Bolshakova er fædd í Rússlandi en hún hefur keppt fyrir Belgíu undanfarin tvö ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






